Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 13. september 2019 07:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ceballos: Hef aldrei séð lið spila betur en Liverpool
Dani Ceballos.
Dani Ceballos.
Mynd: Getty Images
Dani Ceballos hefur farið mjög vel af stað með Arsenal á þessu tímabili eftir að hafa komið á láni frá Real Madrid í sumar.

Eina tap Arsenal á tímabilinu kom gegn Liverpool í 3. umferð á Anfield. Ceballos lýsti sinni upplifun af leiknum í viðtali við The Guardian á dögunum þar sem hann sagði aldrei hafa séð lið spila jafn vel og Liverpool.

„Ég hef aldrei orðið vitni að neinu í líkingu við það sem ég var vitni að á Anfield."

„Ég hef aldrei séð lið spila betur, þessi mikla pressa og hvernig stuðningsmennirnir hvetja þá áfram er magnað. Það er ótrúlegt hversu auðvelt það er fyrir þá að þreyta liðin, maður eyðir svo miklum tíma í vörn svo þegar maður ætlar að fara sækja nær maður varla að anda áður en þeir eru komnir í pressuna," sagði Ceballos um tap Arsenal á Anfield í síðasta mánuði.
Athugasemdir
banner
banner
banner