Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. september 2019 15:00
Magnús Már Einarsson
John Andrews hættir með Völsung
Mynd: Raggi Óla
John Andrews hefur ákveðið að hætta sem þjálfari kvennaliðs Völsungs en hann greinir frá þessari ákvörðun á Instagram.

Völsungur vann 2. deildina í sumar undir stjórn John en hann stýrði liðinu einnig í fyrra.

„Við höfum átt ótrúlegan tíma saman, tekið liðið í nýjar hæðir og staðið okkur framar væntingum með því að vinna deildarmeistaratitilinn í síðustu viku," sagði John.

„Ég hef notið tímans og hlakka til næstu áskorunnar."

„Ég vil þakka öllum hjá Völsungi, leikmönnum, starfsfólki og stjórn fyrir þennan ótrúlega velgengnistíma og óska félaginu alls hins besta í að halda áfram fram á við."


John er frá Írlandi en hann stýrði Aftureldingu í Pepsi-deild kvenna á árunum 2010 til 2013.


Athugasemdir
banner
banner