Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
   mán 13. september 2021 21:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óli Jó búinn að ákveða framhaldið
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
„Mér líður bara mjög vel með þetta, við spiluðum fínan leik í dag og mér fannst við vera með yfirhöndina nánast allan leikinn. Vel gert hjá okkur," sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, eftir öruggan útisigur gegn Stjörnunni.

Lestu um leikinn: Stjarnan 0 -  4 FH

Baldur Logi Guðlaugsson skoraði fyrsta mark leiksins með frábærri aukaspyrnu. „Geggjað mark alveg, geggjað mark."

í stöðunni 0-1 fékk Eggert Aron Guðmundsson, leikmaður FH, rautt spjald. Atvikið gerðist ekki langt frá varamannabekk FH.

„Ég er 100% viss um að þetta var rétt ákvörðun hjá dómaranum. Hann eiginlega hendir sér á eftir honum, fer með sólann í kálfann á honum. Mér sýndist það vera þannig þannig ég held að það hafi verið hárrétt hjá dómaranum."

í kjölfarið kom athyglisverður kafli á viðtalinu þar sem Ólafur var snöggur í svörum, það má sjá í spilaranum að ofan. Að lokum var Ólafur spurður út í framhaldið. Ertu búinn að ákveða eitthvað með framhaldið?

„Já, ég er búinn að ákveða það. Ég mæti á æfingu á miðvikudaginn og svo er leikur á sunnudaginn. Það er framhaldið hjá mér."

En eftir tímabilið?

„Það kemur í ljós hvað ég geri þá," sagði Óli að lokum.
Slapp
banner
banner
banner