Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 13. október 2018 07:00
Hafliði Breiðfjörð
Anna María semur við Stjörnuna til þriggja ára
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Anna María Baldursdótir, leikmaður Stjörnunnar, hefur gert nýjan samning við félagið til þriggja ára.

Anna María hefur leikið 160 leiki með Stjörnunni, þann fyrsta árið 2010, og skorað í þeim tvö mörk.

Anna María á að baki 9 A-landsleiki og 29 leiki með yngri landsliðum Íslands.

Hún er varnarmaður sem spilaði alla leiki Stjörnunnar í deild og bikar í sumar, 18 í Pepsi-deildinni og 4 í Mjólkurbikarnum. Hún skoraði eitt mark í sumar.

Anna María er 24 ára gömul.

Kristján Guðmundsson þjálfar lið Stjörnunnar næstu tvö árin með Ólaf Brynjólfsson sér til aðstoðar en Kristján tók við af Ólafi Guðbjörnssyni sem hætti í haust eftir margra ára starf.
Athugasemdir
banner
banner
banner