Dagurinn var sögulegur fyrir landslið Gíbraltar sem vann 1-0 útisigur gegn Armeníu í D-deild Þjóðadeildarinnar.
Þetta var fyrsti sigur Gíbraltar í mótsleik en þjóðin var tekin inn í FIFA 2013. Í raun var þetta í fyrsta sinn sem Gíbraltar fékk stig í mótsleik.
Gíbraltar hefur reyndar náð að vinna Lettland og Möltu en í báðum tilfellum var um vináttulandsleiki að ræða.

Knattspyrnusamband Armeníu sendi Gíbraltar afsökunarbeiðni þar sem þjóðsöngur Liechtenstein var spilaður fyrir mistök í staðinn fyrir þjóðsögn Gíbraltar fyrir leik.
Þess má geta að um 33 þúsund manns búa í Gíbraltar sem er höfði með landamæri að Spáni.
Athugasemdir