Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 13. október 2018 14:25
Ívan Guðjón Baldursson
Neymar: Vildi frekar leggja upp en að skora fimm sjálfur
Mynd: Getty Images
Gabriel Jesus hefur legið undir gagnrýni fyrir markaþurrð bæði með Manchester City og brasilíska landsliðinu en hann skoraði loksins í vináttulandsleik gegn Sádí-Arabíu í gær.

Þetta var aðeins þriðja mark Gabriel Jesus á tímabilinu og það fyrsta sem hann skorar fyrir landsliðið síðan 10. júní.

Neymar lagði markið upp og vann Brasilía leikinn 2-0. Neymar sagði að leikslokum að hann hafi frekar viljað leggja upp fyrir Jesus heldur en að skora fimm sjálfur.

„Hann hefur legið undir ósanngjarni gagnrýni og verðskuldaði þetta mark," sagði Neymar.

„Ég er mjög ánægður með stoðsendinguna, ég hefði frekar viljað leggja upp fyrir hann heldur en að skora fimm sjálfur."
Athugasemdir
banner
banner