Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
   fim 13. október 2022 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin í dag - Arsenal á gervigrasinu í Noregi
Arsenal mætir Bodö/Glimt í Noregi
Arsenal mætir Bodö/Glimt í Noregi
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo og Antony gætu báðir spilað í kvöld
Cristiano Ronaldo og Antony gætu báðir spilað í kvöld
Mynd: EPA
Evrópudeildin og Sambandsdeild Evrópu er spiluð í kvöld en Arsenal fer til Noregs og spilar við Bodö/Glimt á meðan Manchester United fær Omonia Nicosia í heimsókn á Old Trafford.

Arsenal getur komið sér í góða stöðu með sigri á Bodö/Glimt í kvöld en það má þó ekki gleyma því að þetta er gríðarlega erfiður útivöllur að koma á. Liðið spilar á gervigrasi og eins margir muna eftir tókst norska liðinu að slátra Roma á sama velli á síðasta ári.

Cristiano Ronaldo gæti byrjað fyrir Manchester United gegn Omonia Nicosia á Old Trafford, en hann skoraði sitt fyrsta deildarmark í síðasta leik og gæti verið kominn í gang.

Elías Rafn Ólafsson og hans menn í Midtjylland mæta Feyenoord í Hollandi og þá stýrir Milos Milojevic Rauðu stjörnunni gegn Ferencvaros.

Stefán Teitur Þórðarson og félagar í Silkeborg spila við Steaua Bucharest í Sambandsdeildinni en á sama tíma mætir West Ham liði Anderlecht.

Leikir dagsins:

A-riðill
16:45 Bodo-Glimt - Arsenal
19:00 PSV - Zurich

B-riðill
16:45 AEK Larnaca - Fenerbahce
16:45 Dynamo K. - Rennes

C-riðill
16:45 Betis - Roma
19:00 Ludogorets - HJK Helsinki

D-riðill
16:45 St. Gilloise - Braga
19:00 Union Berlin - Malmo FF

E-riðill
19:00 Man Utd - Omonia
19:00 Real Sociedad - Sheriff

F-riðill
16:45 Feyenoord - Midtjylland
19:00 Lazio - Sturm

G-riðill
16:45 Nantes - Freiburg
16:45 Qarabag - Olympiakos

H-riðill
19:00 Trabzonspor - Mónakó
19:00 Ferencvaros - Rauða stjarnan

Sambandsdeildin

A-riðill
16:45 Istanbul Basaksehir - Rigas FS
16:45 Fiorentina - Hearts

B-riðill
19:00 Steaua - Silkeborg
19:00 West Ham - Anderlecht

C-riðill
16:45 Austria V - Villarreal
19:00 Hapoel Beer Sheva - Lech

D-riðill
16:45 Partizan - Köln
19:00 Nice - Slovacko

E-riðill
16:45 Apollon Limassol - AZ
19:00 Vaduz - Dnipro

F-riðill
16:45 Djurgarden - Gent
19:00 Shamrock - Molde

G-riðill
16:45 Cluj - Slavia Prag
19:00 Ballkani - Demir Grup Sivasspor

H-riðill
16:45 Slovan - Basel
19:00 Zalgiris - Pyunik
Slapp
banner
banner