Fotbolti.net
13.10.22 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Salah bætti met Aguero og Drogba

Mohamed Salah

Mohamed Salah

Canon

Mynd: EPA

Egypski sóknarmaðurinn Mohamed Salah skrifaði sig í sögubækurnar í gær er hann skoraði þrennu í 7-1 sigri Liverpool á Rangers í Meistaradeildinni.
Salah byrjaði á tréverkinu hjá Liverpool en kom inná þegar hálftími var eftir.

Sóknarmaðurinn hefur átt erfiða byrjun á tímabilinu en virðist kominn á flug eftir frammistöðuna í gær.

Þessi þrjú mörk þýða það að enginn hefur skorað fleiri mörk fyrir enskt úrvalsdeildarfélag í Meistaradeildinni en Salah. Didier Drogba og Sergio Aguero áttu metið, eða 36 mörk fyrir Chelsea og Manchester City.

Salah var með 35 mörk fyrir leikinn í gær en hann er nú búinn að bæta það og er með 38 mörk fyrir Liverpool. Í heildina er hann með 41 mark, ef Basel og Roma eru tekin með inn í dæmið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.