Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, snerti boltann aðeins níu sinnum í 7-1 stórsigrinum á Rangers í Meistaradeildinni í gær, en hann nýtti snertingarnar vel, enda skoraði hann þrennu.
Salah þurfti aðeins sex mínútur og tólf sekúndur til að skora þrennuna en Diogo Jota lagði upp öll mörkin.
Egyptinn á því fljótustu þrennu frá því Meistaradeildin var sett á laggirnar en hann bætti met Bafetimbi Gomis frá 2011.
OptaJoe segir að frá því að Opta fór að greina tölfræði leikja fyrir 19 árum síðan hefur enginn leikmaður skorað þrennu í færri snertingum en Salah. Þrennurnar eru 112 talsins og því ansi merkilegur árangur hjá Salah.
Jota er þá fyrsti leikmaðurinn til að leggja upp þrennu síðan Franck Ribery lagði upp þrennu fyrir Mario Gomez í leik með Bayern München gegn Basel fyrir tíu árum.
Roberto Firmino skoraði tvö og lagði upp eitt mark í sigrinum í gær en stoðsendingin var merkileg. Hann er nú kominn með 12 stoðsendingar fyrir Liverpool í Meistaradeildinni og hefur því jafnað félagsmetið og deilir því nú með Steven Gerrard og James Milner.
9 - Since Opta have full touch data for the @ChampionsLeague (2003-04), there have been 112 hat-tricks scored in the competition. @MoSalah's nine touches tonight against Rangers is the fewest in a match for any of those 112 hat-tricks. Efficiency. pic.twitter.com/4v1AHXLk7I
— OptaJoe (@OptaJoe) October 12, 2022


