Giovanni van Bronckhorst, stjóri Rangers, segir 7-1 tapið gegn Liverpool mikil vonbrigði eftir að hafa spilað fínasta fyrri hálfleik í Meistaradeildinni í gær.
Staðan var 1-1 í hálfleik og Rangers inn í leiknum, en Liverpool setti í næsta gír í þeim síðari og skoraði sex mörk.
Mohamed Salah skoraði þrennu á sex mínútum og þá komust þeir Roberto Firmino, Darwin Nunez og Harvey Elliott einnig á blað.
Rangers á ekki lengur möguleika á að komast upp úr riðlinum.
„Þessi úrslit voru mikil vonbrigði. Við spiluðum vel í fyrri hálfleik og vorum inn í leiknum."
„Við vitum styrkleika þeirra og í öðru markinu þegar þú tapar boltanum á miðjum velli þá eru þeir fljótir að koma sér upp völlinn og nokkrum sinnum náðu þeir okkur."
„Við fengum á okkur alltof mikið af auðveldum mörkum. Þetta gerðist hratt eftir það. Við reyndum að ýta okkur framan, en eftir þriðja markið þá sást að við vorum að eiga í erfiðleikum. Þeir hækkuðu tempóið og við vorum ekki nákvæmir í sendingunum."
„Við verðum að breyta hugarfarinu. Við getum verið mjög sterkir, en þegar við erum ekki með hugarfarið þá hefur það áhrif á frammistöðuna og það gerist mjög hratt," sagði Van Bronckhorst.



