Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 13. nóvember 2018 17:00
Magnús Már Einarsson
Andstæðingar tóku saman leigubíl á leið í landsleik
Jonny Evans.
Jonny Evans.
Mynd: Getty Images
Írland og Norður-Írland leiða saman hesta sína í vináttuleik í Dublin á fimmtudaginn.

Jonny Evans, varnarmaður Leicester og Norður-Íra, er spenntur fyrir leiknum en hann þekkir marga leikmenn í írska liðinu.

Evans tók leigubíl á flugvöllinn í Manchester fyrir flugið til Írlands og með honum í för var Robbie Brady, leikmaður Burnley og írska landsliðsins. Þeir mætast í leiknum á fimmtudag.

„Ég hef spilað með mörgum Írum í gegnum tíðina og hef þekkt þá lengi," sagði Evans.

„Ég fór í leigubíl á flugvöllinn í Manchester með Robbie Brady. Við tókum hann upp í á leiðinni og létum hann borga," sagði Evans léttur.
Athugasemdir
banner
banner