The Times segir frá því í dag að lykilmenn hjá Manchester United séu pirraðir á því hversu mikla þolinmæði hann sýnir Nemanja Matic.
Matic hefur haldið sæti sínu í liði Manchester United þrátt fyrir að hafa átt erfitt uppdráttar undanfarnar vikur.
Matic hefur haldið sæti sínu í liði Manchester United þrátt fyrir að hafa átt erfitt uppdráttar undanfarnar vikur.
Matic klikkaði meðal annars á dekkningunni þegar Ilkay Gündogan skoraði þriðja mark Manchester City í 3-1 sigri í grannaslag um helgina.
Þetta voru ekki fyrstu mistök Serbans á þessu tímabili og lykilmenn United eru sagðir ósáttir við að Mourinho haldi honum alltaf í liðinu.
Hinn þrítugi Matic kom til Manchester United frá Chelsea sumarið 2017 og byrjaði vel á Old Trafford. Spilamennska hans hefur hins vegar dalað á þessu ári.
Athugasemdir