Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 13. nóvember 2018 08:12
Magnús Már Einarsson
Zlatan valinn besti nýliðinn í MLS
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic, framherji LA Galaxy, hefur verið valinn besti nýliðinn í MLS deildinni í Bandaríkjunum árið 2018.

Zlatan skoraði 22 mörk og lagði upp tíu til viðbótar á fyrsta tímabili sínu með LA Galaxy.

Þrátt fyrir þennan árangur Svíans náði LA Galaxy ekki að komast í umspil í MLS-deildinni en liðið endaði í sjöunda sæti í Vesturdeildinni.

Zlatan fékk 36,6% atkvæða í vali á liði ársins en Wayne Rooney framherji DC United fékk 32,25% atkvæða. Carlos Vela var þriðji með 13,47% atkvæða.
Athugasemdir
banner
banner
banner