Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 13. desember 2018 11:14
Elvar Geir Magnússon
14 ára leikmaður Man Utd setti UEFA met
Shola Shoretire.
Shola Shoretire.
Mynd: Getty Images
Shola Shoretire varð í gær fyrsti fjórtán ára leikmaðurinn til að spila í Evrópukeppni unglingaliða.

14 ára og 314 daga gamall er þessi ungi vængmaður Manchester United sá yngsti sem spilað hefur í keppninni.

Shoretire kom inn sem varamaður í 2-1 sigri gegn Valencia.

Þess má geta Harvey Neville, sextán ára sonur Phil Neville, spilaði sinn fyrsta leik í keppninni fyrir Manchester United.

Nicky Butt þjálfar U19 lið United sem vann fimm leiki og gerði eitt jafntefli í H-riðli og stóð uppi sem sigurvegari.




Athugasemdir
banner
banner
banner