Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 13. desember 2018 06:00
Magnús Már Einarsson
Noble framlengir við West Ham
Mynd: Getty Images
Fyrirliðinn Mark Noble hefur framlengt samning sinn við West Ham til ársins 2021.

Noble var áður samningsbundinn til sumarsins 2020 en félagið hefur ákveðið að framlengja við hann.

Noble er 31 árs gamall miðjumaður en hann ólst upp hjá West Ham.

Noble hefur samtals skorað 51 mark í yfir 400 leikjum með Hömrunum á ferlinum.

West Ham hefur verið á uppleið að undanförnu en liðið hefur unnið þrjá af síðustu þremur leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner