Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 13. desember 2018 19:00
Arnar Helgi Magnússon
Wijnaldum: Milner er vél!
Mynd: Getty Images
James Milner náði merkilegum áfanga nú á dögunum þegar að hann spilaði sinn 500. deildarleik á Englandi.

Liðsfélagi Milner, Georginio Wijnaldum segir að það komi sér nákvæmlega ekkert á óvart að Milner hafi náð þessum áfanga.

„Þetta er magnað afrek, sérstaklega í ljósi þess hversu vel Milner er að spila. Þessi gæi er vél,"" segir Wijnaldum.

„Hann er alltaf í ræktinni og í hvert einasta skipti sem við sjáum hann þá spyrjum við hvort að hann þurfti ekki að slaka á og fá smá hvíld."

„Hann er mjög upptekinn af því að halda sér í sem allra besta formi. Það kemur mér ekkert á óvart að hann hafi náð þessum árangri miðað við alla vinnuna sem að hann leggur á sig."

Liverpool mætir Manchester United í stórleik umferðarinnar á Anfield á sunnudag klukkan 16:00
Athugasemdir
banner
banner
banner