Fotbolti.net
13.12.19 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

England um helgina - Arsenal mætir City á svakalegum sunnudegi

England um helgina - Arsenal mætir City á svakalegum sunnudegi
Canon

Mynd: Getty Images

Það styttist í jólabrjálæðið í enska boltanum og fer sautjánda umferð deildartímabilsins fram um helgina. Í vikunni verður svo keppt í 8-liða úrslitum deildabikarsins og eftir það verður ekkert lát á úrvalsdeildarleikjum þar til í janúar.
Helgin hefst á Anfield þar sem topplið Liverpool tekur á móti botnliði Watford. Þetta verður fyrsti leikur Nigel Pearson við stjórnvölinn hjá Watford en Anfield er líklega ekki besti staðurinn til að byrja í nýju starfi sem knattspyrnustjóri á útivelli.

Liverpool er með átta stiga forystu á toppinum. Leicester er í öðru sæti og tekur á móti nýliðum Norwich á sama tíma og Chelsea fær Bournemouth í heimsókn. Viðureign Chelsea verður sýnd beint í Sjónvarpi Símans.

Jóhann Berg Guðmundsson er tæpur fyrir heimaleik Burnley gegn Newcastle sem fer fram á sama tíma og nýliðaslagur Sheffield United og Aston Villa. Southampton mætir svo West Ham í síðasta leik dagsins.

Á sunnudaginn á Manchester United heimaleik gegn Gylfa Þóri Sigurðssyni og félögum í Everton. Það verður áhugaverð viðureign þar sem Everton spilar sinn annan leik undir stjórn Duncan Ferguson, en fyrsta leiknum lauk með óvæntum en verðskulduðum 3-1 sigri gegn Chelsea.

Á sama tíma tekur Wolves á móti Tottenham í gríðarlega áhugaverðri viðureign, sem stenst þó ekki samanburð við lokaleik helgarinnar.

Arsenal tekur þar á móti Englandsmeisturum Manchester City sem mæta eflaust grimmir til leiks og hungraðir í sigur eftir tap á heimavelli gegn nágrönnum sínum í Man Utd um síðustu helgi.

Crystal Palace og Brighton eigast við í síðasta leik umferðarinnar sem fer fram á mánudagskvöldið.

Laugardagur:
12:30 Liverpool - Watford (Síminn Sport)
15:00 Chelsea - Bournemouth (Sjónvarp Símans)
15:00 Leicester - Norwich
15:00 Burnley - Newcastle
15:00 Sheffield Utd - Aston Villa
17:30 Southampton - West Ham (Síminn Sport)

Sunnudagur:
14:00 Man Utd - Everton (Síminn Sport)
14:00 Wolves - Tottenham
16:30 Arsenal - Man City (Síminn Sport)

Mánudagur:
19:45 Crystal Palace - Brighton (Síminn Sport)
England um helgina - Arsenal mætir City á svakalegum sunnudegi
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.