Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   þri 13. desember 2022 23:51
Elvar Geir Magnússon
Yngsti þjálfari HM ætlar að láta draum Messi rætast
Lionel Scaloni í nærmynd
Scaloni og Messi.
Scaloni og Messi.
Mynd: EPA
Var réttur maður á réttum stað.
Var réttur maður á réttum stað.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Argentína mun leika til úrslita á HM á sunnudag, þetta var ljóst eftir sannfærandi 3-0 sigur liðsins gegn Króatíu.

Þegar talað er um argentínska landsliðið fær Lionel Messi skiljanlega sviðsljósið. Minna er rætt um manninn með stjórnartaumana, Lionel Scaloni, sem er yngsti þjálfarinn á HM í Katar.

Hver er Scaloni?
Scaloni er 44 ára gamall og hefur sýnt snilli sína á mótinu þar sem hann hefur verið afskaplega glöggur í að lesa í veikleika andstæðingana og óhræddur við að breyta leikkerfi argentínska liðsins eftir því hvernig mótherjarnir spila.

En hvernig varð Scaloni þjálfari Argentínu? Það má segja að hann hafi verið réttur maður á réttum stað og náð að þjótast upp metorðastigann í heimalandi sínu.

Sem leikmaður var Scaloni bakvörður og lék sjö landsleiki fyrir Argentínu, þar á meðal einn leik á HM 2006 en það kom á óvart þegar hann var valinn í lokahópinn fyrir mótið. Á félagsliðaferlinum lék hann lengst fyrir Deportivo La Coruña á Spáni en spilaði einnig fyrir Lazio og Atalanta á Ítalíu auk þess að eiga þrettán leiki sem lánsmaður fyrir West Ham árið 2006.

Þaut á ógnarhraða í landsliðsþjálfarastólinn
Eftir að Scaloni lagði skóna á hilluna var hann ráðinn í þjálfarateymi landa síns Jorge Sampaoli hjá Sevilla á Spáni í október 2016. Níu mánuðum síðar tók Sampaoli við argentínska landsliðinu og Scaloni fylgdi honum þangað sem aðstoðarmaður.

Argentínska landsliðið stóð ekki undir væntingum á HM 2018, eins og við Íslendingar þekkjum vel, og sjálfur Messi leyndi ekki óánægju sinni með Sampaoli. Í æfingabúðum liðsins missti Messi stjórn á sér og hrópaði að honum: 'Við skiljum ekki hvað þú ert að segja, við treystum þér ekki lengur'.

Scaloni varð vitni að þessum samskiptum. Fjölmiðlar fóru á flug þegar þetta fréttist út, ljóst var að leikmenn voru ekki að dansa í takt við Sampaoli sem var rekinn eftir tap gegn Frakklandi í 16-liða úrslitum.

Mennirnir sem sambandið vildi ráða voru ekki lausir
Scaloni var í kjölfarið ráðinn til að stýra Argentínu til bráðabirgða eftir að Sampaoli var rekinn, upphaflega var hugsunin að hann tæki tvo æfingaleiki á meðan fótboltasamband Argentínu væri að skoða reynslumeiri menn í starfið. Mauricio Pochettino, sem var stjóri Tottenham á þessum tímapunkti, og Diego Simeone hjá Atletico Madrid, voru uppteknir.

Scaloni hafði ekki mikla þjálfarareynslu en nýtti sér þá reynslu sem hann hefur sem fyrrum leikmaður í landsliðinu. Hann náði að gera öfluga liðsheild með reynslumiklum leikmönnum í bland við yngri og náði því sem mörgum hafði mistekist: Að fá Messi til að vera bestu útgáfuna af sjálfum sér í argentínska landsliðsbúningnum.

Scaloni fékk lengri samning, framyfir Copa America (Suður-Ameríku bikarinn) 2019. Þar hafnaði Argentína í þriðja sætinu.

Hefur þaggað niður í efasemdarröddum
Aftur fékk Scaloni framlengingu á samningi sínum og 2021 stýrði hann Argentínu til sigurs í Copa America þar sem liðið vann Brasilíu 1-0 í úrslitaleik. Risastór stund í sögu landsliðsins sem vann sinn fyrsta titil í heil 28 ár. Það var alveg ljóst að Scaloni myndi stýra Argentínu á HM 2022.

„Hann er afskaplega greindur einstaklingur. Hann var alltaf sá sem fylgdist með og spurði fullt af spurningum," segir Hugo Tocalli sem þjálfaði yngri landslið Argentínu og var aðstoðarmaður Jose Pekerman sem stýrði Argentínu á HM 2006.

„Hann vildi fá að vita hugsunina bak við taktískar æfingar. Hann pældi mikið í hlutunum og spjallaði við félaga sína. Hann veit vel hvernig á að tala við leikmenn í dag, hann einfaldar hlutina og öðlast virðingu."

Messi sjálfur, sem vann sinn fyrsta titil með landsliðinu undir stjórn Scaloni, sagði þetta í viðtali:

„Hann er mjög persónulegur, hann ræðir mikið við leikmenn og vill vera til staðar ef þeir þurfa eitthvað. Það skín í gegn að hann elskar starfið sitt," sagði Messi um Scaloni.

Margar efasemdarraddir heyrðust um Scaloni, fjölmiðlar og reynslumiklir sérfræðingar töldu hann ekki vera nægilega hæfan til að stýra argentínska landsliðinu. Sú umræða er algjörlega þögnuð. Scaloni, sem hefur samið til 2026 við argentínska fótboltasambandið, einbeitir sér nú að undirbúningi fyrir úrslitaleik HM 2022 sem fram fer á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner