sun 14. janúar 2018 13:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wenger: Get ekki sagt ykkur hvar Sanchez endar
Mynd: Getty Images
Alexis Sanchez er ekki í leikmannahópi Arsenal sem mætir Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Sanchez er á förum frá Arsenal og ferðaðist ekki með liðinu í þennan leik. Enskir fjölmiðlar sögðu frá því í morgun að Manchester United sé líklegasti áfangastaður Sílemannsins.

Wenger spjallaði við fréttamann Sky Sports eftir að liðsvalið var tilkynnt og í ljós kom að Sanchez væri ekki með.

„Hann hefur verið óskýr, staða hans er ekki ákveðin svo ég skildi hann eftir heima," sagði Wenger.

Wenger býst við því að málin skýrist fljótlega hjá Sanchez.

„Já, en ekki lesa of mikið í það vegna þess að ég veit sjálfur ekki hvað mun gerast. Þú vilt einbeita þér að leikmönnunum sem eru inn á vellinum og geta gert vel fyrir félagið."

Aðspurður að því hvort hann vissi hvar Sanchez myndi enda sagði Wenger: „Nei, það veit ég ekki."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner