Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   mán 14. janúar 2019 17:30
Arnar Helgi Magnússon
Eggert Gunnþór: Reikna með að við setjumst niður fljótlega
Icelandair
Eggert á æfingu í Katar í dag.
Eggert á æfingu í Katar í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
„Leikurinn gegn Svíum var fínn. Við spiluðum vel, sérstaklega í fyrri hálfleik. Heilt yfir voru góðir punktar í þessu. Það var gott að fá markið í endann og byrja árið ekki á tapi," segir Eggert Gunnþór en hann var í byrjunarliðinu í leiknum.

Íslenska liðið mætir Eistlandi á morgun í Katar og er Eggert bjartsýnn á sigur í þeim leik.

„Jájá. Við erum búnir að skoða þá aðeins og þeir eru með reyndara lið en við. Við náum vonandi bara að byggja á því sem að við vorum að gera vel á móti Svíum og ná í sigur snemma á árinu."

Eggert spilar með SønderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni en þar er vetrarfrí núna.

„Það hefur gengið fínt. Við erum um miðja deild og við vorum að skipta um þjálfara. Vonandi kemur hann með auka kraft og við náum að rífa okkur upp í topp sex. Ég spila alla leiki og það hefur gengið vel persónulega."

Samningur Eggert við félagið rennur út í sumar en hann gæti framlengt samning sinn.

„Ég er mjög sáttur. Ég á hálft ár eftir af samningi og reikna með að við setjumst niður fljótlega eftir janúar og sjáum hvað setur. Mér líður mjög vel innan og utan vallar," sagði Eggert.

Viðtalið við Eggert má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner