AS Roma 4 - 0 Virtus Entella
1-0 Patrick Schick ('1)
2-0 Ivan Marcano ('45)
3-0 Patrick Schick ('47)
4-0 Javier Pastore ('75)
1-0 Patrick Schick ('1)
2-0 Ivan Marcano ('45)
3-0 Patrick Schick ('47)
4-0 Javier Pastore ('75)
Roma lenti ekki í teljandi vandræðum gegn C-deildarliði Virtus Entella í ítalska bikarnum í kvöld.
Patrick Schick kom heimamönnum af stað með glæsilegu hælspyrnumarki og tvöfaldaði Ivan Marcano forystuna rétt fyrir leikhlé.
Schick bætti þriðja markinu við í upphafi síðari hálfleiks og gerði Javier Pastore endanlega út um leikinn þegar stundarfjórðungur var eftir.
Gestirnir stóðu sig þokkalega á Ólympíuleikvanginum en gæðamunur liðanna var augljós.
Roma á leik við Fiorentina í 8-liða úrslitum.
Athugasemdir