Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 14. janúar 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - 16-liða úrslitin klárast í kvöld
Virtus Entella er í toppbaráttu C-deildarinnar eftir að hafa fallið úr B-deild í fyrra.
Virtus Entella er í toppbaráttu C-deildarinnar eftir að hafa fallið úr B-deild í fyrra.
Mynd: Getty Images
Tveir síðustu leikir 16-liða úrslita ítalska boltans fara fram í dag og er einn úrvalsdeildarslagur á dagskrá.

Cagliari tekur þar á móti Atalanta í hörkuleik þar sem liðin keppast um að mæta ríkjandi meisturum Juventus.

Cagliari er þegar búið að slá Palermo og Chievo út í bikarnum en Atalanta kom beint inn í 16-liða úrslitin rétt eins og önnur lið sem enduðu í átta efstu sætum Serie A í fyrra.

Roma mætir svo til leiks í kvöld þegar C-deildarlið Virtus Entella kíkir í heimsókn. Búist er við auðveldum sigri Roma þar, en Entella sló nágranna sína í Genoa úr leik í 32-liða úrslitum.

Entella gerði óvænt 3-3 jafntefli við Genoa og hafði svo betur í vítaspyrnukeppninni.

Leikir dagsins:
16:30 Cagliari - Atalanta
20:00 Roma - Virtus Entella
Athugasemdir
banner