Síðasti leikur helgarinnar í spænska boltanum fer fram í kvöld þegar Real Sociedad tekur á móti Espanyol í San Sebastian.
Heimamenn í Sociedad hafa verið að glíma við ótrúlegt magn meiðsla á tímabilinu og eru hvorki meira né minna en átta leikmenn hópsins tæpir fyrir leikinn í kvöld.
Liðin eru bæði um miðja deild, nokkrum stigum fyrir ofan fallsæti og nokkrum stigum frá Evrópusæti.
Leikur kvöldsins:
20:00 Real Sociedad - Espanyol (Stöð 2 Sport 2)
Athugasemdir