Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 14. janúar 2019 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Zenit vill 36 milljónir fyrir Paredes
Mynd: Getty Images
Zenit frá Pétursborg hafnaði 26,8 milljón punda tilboði frá Chelsea í argentínska miðjumanninn Leandro Paredes.

Rússneska félagið vill 36 milljónir punda fyrir Paredes sem var keyptur til félagsins frá Roma á 24 milljónir fyrir einu og hálfu ári síðan.

Paredes á að fylla í skarðið sem Cesc Fabregas skildi eftir sig þegar hann skipti yfir til Mónakó í fallbaráttu franska boltans.

Paredes á níu landsleiki að baki fyrir Argentínu og hefur mikinn áhuga á að ganga til liðs við Chelsea, þar sem hann getur fengið 80 þúsund pund í vikulaun.
Athugasemdir
banner