Fotbolti.net
14.01.20 - 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalska deildin

Keyptur frá Juve og spilaði ekki deildarleik - Lánaður til Atalanta (Staðfest)

Mattio Caldara

Mattio Caldara

Canon

Mynd: Getty Images

Mattia Caldara gekk í raðir AC Milan frá Juventus í ágúst 2018. Milan skipti á honum og Leonardo Bonucci sem sneri til baka til Juventus eftir veru hjá Milan. Bæði Bonucci og Caldara voru skráðir með verðmiðann 35 milljónir evra.

Caldara er uppalinn hjá Atalanta og keypti Juventus hann sumarið 2017 og lánaði hann strax til baka til Atalanta út tímabilið 2017-18. Árið 2018 lék Caldara sína fyrstu tvo landsleiki en tími hans hjá Milan einkenndist af meiðslum.
Caldara lék ekki einn einasta deildarleik hjá Milan og spilaði einungis einn Evrópudeildarleik og einn bikarleik. Nú hefur Caldara verið lánaður heim til Atalanta á 18-mánað lánssamningi.

Caldara er 25 ára miðvörður og Atalanta getur keypt hann fyrir fimmtán miljónir evra á meðan lánssamningurinn er í gildi. Milan mun svo fá prósentu af næstu sölu kaupi Atalanta leikmanninn og selji hann svo áfram.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.