Fotbolti.net
14.01.21 - 22:39
Ívan Guðjón Baldursson

Arteta: Vantaði gæði í sóknarleikinn

Arteta: Vantaði gæði í sóknarleikinn
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal og Crystal Palace gerðu markalaust jafntefli í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.
Það var lítið að frétta á Emirates leikvanginum og geta lærisveinar Mikel Arteta talið sig heppna að hafa sloppið með stig eftir erfiðan fyrri hálfleik.

Arteta var jákvæður að leikslokum en viðurkenndi að hans menn hafi ekki átt skilið sigur í kvöld.

„Við sköpuðum mikið af góðum sóknarstöðum en það vantaði gæðin á síðasta þriðjungnum. Við gerðum ekki nóg til að vinna þennan leik," sagði Arteta.

„Við erum að spila marga leiki og það er augljóst að leikmenn eru þreyttir. Það hafði mikil áhrif á gæðin í leiknum."

Kieran Tierney var utan hóps og staðfestir Arteta að hann sé að glíma við meiðsli. Ekki er ljóst hversu alvarleg þau eru.

„Roy Hodgson er reynslubolti og hefur spilað marga svona leiki á ferlinum. Við vorum með gott plan en það vantaði gæðin til að framkvæma það."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.