Fotbolti.net
14.01.21 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

„Hann gerir aðra leikmenn í kringum sig betri"

Partey á æfing Arsenal í gær.

Partey á æfing Arsenal í gær.

Canon

Mynd: Getty Images

Thomas sérstakur karakter sem gerir aðra leikmenn í kringum sig betri. Þetta segir Mikel Arteta, stjóri Arsenal, sem er spenntur fyrir því að fá Partey aftur af meiðslalistanum þegar Arsenal mætir Crystal Palace í kvöld.

Arsenal keypti Partey frá Atletico Madrid í október en hann hefur verið að glíma við meiðsli og aðeins spilað sex leiki fyrir nýja vinnuveitendur.

Hans eini leikur á síðustu tveimur mánuðum kom í tapinu gegn Tottenham í desember en þá fór hann af velli í hálfleik. En nú er hann klár í slaginn á ný.
„Ég tel að hann komi inn með öðruvísi eiginlega. Hann kemur með eitthvað nýtt í liðið sitt. Þetta snýst ekki bara um hæfileika hans og líkamlegan styrk. Þetta snýst líka um hann sem karakter, hann gerir samherja sína betri og það er rosalega stór kostur," segir Arteta.

„Það er magnað að við séum í janúar, við keyptum hann í október, og við höfum aðeins getað notað hann í nokkrum leikjum. Við höfum í raun ekki séð áhrifin sem hann getur haft á liðið. Auðvitað höfum við saknað hans. Það yrði mikill bónus ef við náum að halda honum heilum."

Partey fékk mikið lof fyrir frábæra frammistöðu í sigrinum gegn Manchester United á Old Trafford þann 1. nóvember en síðan hafa meiðsli hindrað hann.

„Hann sýndi mikinn vilja í að koma til okkar. Hann vildi algjörlega taka þátt í því sem við værum að gera og veit hversu mikið hann getur hjálpað okkur. Svo komu þessi meiðsli, útgöngubannið og hann er að aðlagast nýju umhverfi. Þetta hefur verið erfiður tími fyrir hann."

„Þess vegna var hann stundum að flýta sér of mikið. Hann vildi svo mikið snúa aftur sem fyrst. Hann vill ekki vera einn heima. Hann er á góðum stað, hefur fundið sig vel í klefanum og nær góðu sambandi við starfsliðið. Hann er sérstakur karakter og vonandi getum við séð hann á vellinum sem fyrst."

Annars er það að frétta af leikmannahópi Arsenal að varnarmaðurinn Gabriel Magalhaes er einnig klár í slaginn eftir að hafa jafnað sig af Covid-19.
Mikel Arteta.

Mikel Arteta.

Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City2+46
2Brighton1+43
3Arsenal1+33
4Brentford1+33
5Everton1+23
6Hull City1+23
7Chelsea1+13
8Ipswich Town1+13
9Leeds1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Tottenham1-30
18Coventry1-30
19Aston Villa1-40
20Crystal Palace2-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.