Fotbolti.net
14.01.22 - 16:00
Elvar Geir Magnússon

Dean Smith: Ég hef trú en leikmenn þurfa að hafa hana líka

Dean Smith, stjóri Norwich.

Dean Smith, stjóri Norwich.

Canon

Mynd: EPA

Norwich vermir botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar og þrátt fyrir að margir bóki fall hjá liðinu segir Dean Smith, stjóri liðsins, vera bjartsýnn.

„Ég hef trú á því að við getum snúið dæminu við. Það sem er mikilvægast er að leikmenn þurfa að hafa þá trú líka," sagði Dean Smith á fréttamannafundi í dag en liðið mætir Everton á morgun.
„Everton byrjaði tímabilið vel, það tekur tíma fyrir nýjan stjóra að koma sínum áherslum að. Ég ber virðingu fyrir því sem Rafa hefur gert í þessari deild."

Um stöðuna á leikmannahópnum:
„Todd Cantwell æfði í gær og á miðvikudaginn og er klár í hópinn. Enginn bættist á meiðslalistann á miðvikudaginn," sagði Smith.

„Mathias Normann færist nær. Hann er að stíga næstu skref í endurhæfingu sinni. Josh Sargent æfði í gær og verður í hópnum á morgun. Það eru tvær til þrjár vikur giska ég á að Lukas Rupp snúi aftur."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.