Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 14. febrúar 2019 13:03
Elvar Geir Magnússon
Marcao, Fred og Tiago koma aftur til Framara
Fred Saraiva.
Fred Saraiva.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Marcus Vinicius Vieira, Fredrico Saraiva og Tiago Fernandes verða áfram í herbúðum Fram og munu leika með liðinu í Inkasso-deildinni í sumar.

Þeir eru væntanlegir til landsins á næstu dögum.

Marcus Vieira er kallaður Marcao og er 24 ára brasilískur varnarmaður. Hann gekk í raðir Fram fyrir tímabilið í fyrra en gat ekkert tekið þátt yfir sumarið vegna meiðsla.

Marcao á fjóra leiki að baki fyrir yngri landslið Brasilíu.

Fred Saraiva er 22 ára brasilískur sóknarmaður sem skoraði fjögur mörk fyrir Fram í Inkasso-deildinni í fyrra. Hann lék alla 22 leiki liðsins í deildinni.

Tiago Fernandes er 23 ára portúgalskur sóknarmiðjumaður sem spilaði 21 leik með Fram í Inkasso-deildinni og skoraði fjögur mörk.

Fram endaði í 9. sæti Inkasso-deildarinnar í fyrra en Jón Sveinsson tók við þjálfun liðsins eftir sumarið.


Athugasemdir
banner
banner