Fyrir helgi var sagt frá því að Manuel Neuer yrði líklega ekki í markinu gegn Liverpool í fyrri leik liðanna í Meistaradeildinni. Nú virðast hins vegar vera ágætis líkur á því að svo verði.
Neuer hefur verið lykilmaður í liði Bayern og þýska landsliðsins en hann hefur verið einn besti markvörður heims um árabil.
Meiðsli hafa verið að stríða honum, en Niko Kovac, stjóri Bayern, sagði í gær að Neuer gæti verið með gegn Augsburg á föstudag og þar með einnig gegn Liverpool í næstu viku.
Þetta eru kannski ekki þau tíðindi sem stuðningsmenn Liverpool vilja heyra. En ef svo fer að Neuer verður ekki með, þá verður Sven Ulreich í markinu hjá Þýskalandsmeisturunum.
A squad update from Niko #Kovac: "Everyone has trained apart from @ArjenRobben and @CorentinTolisso, including @Manuel_Neuer. He seems fine again and is an option for Friday."#packmas #FCAFCB pic.twitter.com/hJpQh6cSbA
— FC Bayern English (@FCBayernEN) February 13, 2019
Athugasemdir