Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 14. febrúar 2019 14:00
Magnús Már Einarsson
Pochettino: Stundum vanmetur fólk okkur
Mauricio Pochettino.
Mauricio Pochettino.
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, segir að fólk vanmeti liðið oft á tíðum. Pochettino sagði þetta eftir 3-0 sigurinn á Borussia Dortmund í gærkvöldi.

Um var að ræða fjórða sigur Tottenham í röð en liðið hefur verið án Harry Kane og Dele Alli í öllum þessum leikjum.

„Þetta var gott því fólk býst ekki bara við sigri þegar Tottenham spilar heldur býst það líka við frammistöðu eins og hjá draumaliði Barcelona með (Johan) Cruyff eða Milan með Arrigo Sacchi," sagði Pochettino.

„Það er mjög gott. Við erum stotlir af því að fólk búist við slíkri frammistöðu hjá okkur en stundum vanmetur fólk okkur."

„Við spilum mun betur en fólk vill meina stundum en þú getur ekki barist við viðhorf fólks. Ég er ánægður með frammistöðuna og stöðuna hjá okkur."

Athugasemdir
banner
banner
banner