Fotbolti.net
14.02.20 - 22:46
Ívan Guðjón Baldursson

Espirito Santo: Verða að bæta VAR kerfið

Espirito Santo: Verða að bæta VAR kerfið
Canon

Mynd: Getty Images

Nuno Espirito Santo stjóri Wolves var ekki sáttur eftir að mark Willy Boly var dæmt af í markalausu jafntefli gegn Leicester fyrr í kvöld.
Espirito Santo gagnrýndi VAR myndbandskerfið sem er notað í úrvalsdeildinni og sagðist vonast til að það yrði lagað í framtíðinni.

„Við spiluðum nógu vel til að vinna þennan leik. Við skoruðum mark en það dugði ekki til. Dómarinn sagði að þetta væri rangstæða en ég skil ekki hvaða hagnað við höfðum af henni," sagði Espirito Santo.

„Við þurfum að læra að lifa með þessu og vona að kerfið verði bætt. Það er augljóst að þeir verða að bæta það. Ég er viss um að það verði gert."

Þetta var tólfta jafntefli Úlfanna á deildartímabilinu og sitja þeir í sjöunda sæti, þremur stigum frá Evrópusæti.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.