Í kvöld skýrist það hvaða tvö lið verða síðustu liðin til að tryggja sig áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Það þarf ekki að spyrja að því í fyrri leik dagsins því Bayern er komið með farseðilinn, svo einfalt er að. Bayern vann fyrri leik sinn gegn Besiktas 5-0 og því lítinn sem enginn möguleiki fyrir tyrkneska félagið að fara lengra í þessari keppni.

Í hinni viðureign kvöldsins er aðeins meiri spenna þar sem Barcelona fær Chelsea í heimsókn í Katalóníu.
Fyrri leikurinn á Englandi endaði 1-1 eftir að Chelsea komst yfir og það verður fróðlegt að sjá hvað gerist í kvöld.
Nýbakaði faðirinn Lionel Messi mun væntanlega snúa aftur í lið Barcelona í kvöld.
Leikir dagsins:
17:00 Besiktas - Bayern München (Stöð 2 Sport)
19:45 Barcelona - Chelsea (Stöð 2 Sport)
Sjá einnig:
Fabregas: Reyni að láta Messi líða óþægilega
Athugasemdir