Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 14. mars 2019 10:38
Elvar Geir Magnússon
Dembele ekki með gegn Íslandi
Icelandair
Dembele er 21 árs og á 21 landsleik fyrir Frakkland.
Dembele er 21 árs og á 21 landsleik fyrir Frakkland.
Mynd: Getty Images
Ousmane Dembele verður ekki með franska landsliðinu gegn Íslandi í undankeppni EM.

Dembele er meiddur aftan í læri og verður frá í mánuð.

Ísland mætir Frakklandi í undankeppni EM í París þann 25. mars en 22. mars verður leikið gegn Andorra.

Vængmaðurinn meddist í 5-1 sigri Barcelona gegn Lyon í Meistaradeildinni í gær en hann skoraði eitt mark í leiknum. Hann er búinn að skora þrjú mörk í Meistaradeildinni í vetur.

Hann gæti misst af báðum leikjum Barcelona í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en dregið verður í 8-liða úrslitin á morgun.

Þess má geta að Erik Hamren, landsliðsþjálfari Íslands, opinberar á eftir klukkan 13 hóp sinn fyrir komandi leiki. Didier Deschamps, þjálfari heimsmeistara Frakka, opinberar sinn hóp á sama tíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner