Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 14. mars 2019 22:40
Arnar Helgi Magnússon
Evrópudeildin: Slavia Prag og Benfica síðust inn í 8-liða úrslitin
Alex Grimaldo skoraði fyrir Benfica.
Alex Grimaldo skoraði fyrir Benfica.
Mynd: Getty Images
Kjær setti boltann í eigið net á ögurstundu
Kjær setti boltann í eigið net á ögurstundu
Mynd: Getty Images
Benfica og Slavia Prag eru tvö síðustu liðin til þess að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar en framlengja þurfti í tveimur leikjum í kvöld.

Slavia Prag og Sevilla mættust í Tékklandi en eftir 90 mínútur var staðan 2-2, líkt og í fyrri leik liðanna. Því þurfti að grípa til framlengingar til þess að skera úr um sigurvegara.

Franco Vázquez kom Sevilla yfir þegar átta mínútur voru liðnar af framlengingunni og þá þurfti Slavia tvö mörk afþví að Sevilla var þá á leiðinni áfram á fleiri útivallarmörkum skoruðum.

Mick van Buren jafnaði metin í 3-3 stuttu fyrir hálfleik framlengingarinnar. Slavia tókst hið ómögulega þegar Simon Kjær setti boltann í eigið net á 119. mínútu eftir mikið klafs í teig Sevilla.

Lokatölur 4-3 og Tékkarnir fara áfram í 8-liða úrslitin.

Það var einnig framlengt í Portúgal þar sem að Benfica og Dinamo Zagreb mættust. Eftir 90 mínútur var staðan 1-0, Benfica í vil og staðan því jöfn eftir tvisvar sinnum níutíu mínútur en Zagreb vann fyrri leikinn líka 1-0.

Benfica kláraði einvígið í framlengingunni með tveimur mörkum. Annars vegar frá Francisco Ferreira og hinsvegar Alejandro Grimaldo. Lokatölur 3-0 en samanlögð úrslit þá 3-1.

Slavia Praha 4 - 3 Sevilla (Samanlagt 6-5)
1-0 Michael Ngadeu-Ngadjui ('15 )
1-1 Wissam Ben Yedder ('44 , víti)
2-1 Tomas Soucek ('47 , víti)
2-2 Munir El Haddadi ('54 )
2-3 Franco Vazquez ('98 )
3-3 Mick van Buren ('102 )
3-4 Simon Kjaer ('119 , sjálfsmark)

Benfica 3 - 0 Dinamo Zagreb (Samanlagt 3-1)
1-0 Jonas ('71 )
2-0 Ferro ('94 )
3-0 Alex Grimaldo ('105 )

Dregið verður í 8-liða úrslitin á morgun.

Liðin sem verða í pottinum á morgun:
Chelsea
Valencia
Napoli
Villareal
Eintracht Frankfurt
Arsenal
Slavia Prag
Benfica
Athugasemdir
banner
banner