Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 14. mars 2019 14:30
Arnar Daði Arnarsson
Freyr um Andorra: Enginn göngutúr í garðinum
Icelandair
Freyr Alexandersson og Erik Hamren þjálfarar íslenska landsliðsins.
Freyr Alexandersson og Erik Hamren þjálfarar íslenska landsliðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Freyr Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands er búinn að leikgreina lið Andorra vel fyrir fyrsta leik Íslands í undankeppni Evrópumótsins 2020.

Ísland mætir Andorra ytra á föstudaginn eftir viku. Hann segist skilja það að þekki ekkert landslið Andorra og það komi honum lítið á óvart að fólk haldi að Ísland sé að fara í auðveldan leik.

„Þeir eru ekki með marga leikmenn sem spila á hæsta leveli. Þeir eru með gott lið, þekkja sín takmörk og vita fyrir hvað þeir standa og spila ákveðna týpu af fótbolta sem við þurfum að undirbúa okkur undir það," sagði Freyr.

„Það segir sig sjálft að þetta verður erfitt þegar það sér úrslitin. Ég skil það alveg að fólk sem kynnir sér ekki Andorra og þekkir þá ekki, gefi sér það að þetta verði göngutúr í garðinum en svo verður ekki."

Andorra eru sérstaklega hættulegir á heimavelli og sést það vel á úrslitum þeirra að þeir ná töluvert betri árangri á heimavelli heldur en á útivelli.

„Í síðustu sex heimaleikjum sínum hafa þeir aðeins tapað einum og það var gegn Portúgal 2-0. Þetta eru alltaf jafnir leikir og þetta verður bardagi fram að síðustu mínútu. Samt sem áður þá förum við þangað til að vinna og ætlumst til að við eigum að vinna og við höfum gæðin í liðinu til að gera það. Við þurfum hinsvegar að mæta og undirbúa okkur vel og bera virðingu fyrir andstæðingunum."

Viðtalið við Frey má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner