Sóknarmaðurinn Alfreð Finnbogason er í landsliðshópnum fyrir komandi leiki gegn Andorra og Frakklandi í undankeppni EM.
Alfreð hefur verið fjarri góðu gamni í síðustu leikjum Augsburg en vonast er til þess að hann geti spilað með liði sínu gegn Hannover um helgina.
„Þetta lítur bara nokkuð vel út með Alfreð. Hann hefur æft vel og mun vonandi spila með liði sínu á laugardaginn. Ég bið fyrir því að allt verði í lagi með hann," segir Erik Hamren, landsliðsþjálfari Íslands.
Ísland mætir Andorra 22. mars og Frakklandi 25. mars, báðir leikirnir á útivöllum.
Jón Daði Böðvarsson, sóknarmaður Reading, er á meiðslalistanum og verður ekki með í komandi verkefni.

Stjóri Augsburg sagði frá því í dag að Alfreð Finnbogason væri nálægt endurkomu. En hann sagði ekki ljóst hvort hann gæti spilað gegn Hannover 96 á laugardaginn. #fotboltinet
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) March 14, 2019
Athugasemdir