Það eru þrír leikir á dagskrá í Lengjubikarnum í kvöld sem byrjar á viðureignum í B-deild karla og C-deild kvenna.
Í karlaboltanum taka Vængir Júpíters á móti KFG á Fjölnisvelli. Sigurliðið úr leiknum í kvöld getur jafnað eða komist yfir topplið ÍR á stigum.
Í kvennaboltanum eigast Leiknir R. og Haukar við á Leiknisvelli. Leiknisstúlkur fóru illa af stað í ár og töpuðu 0-10 gegn Þrótti R. í fyrstu umferð.
Stórleikur kvöldsins er í A-deild Lengjubikars kvenna þar sem Breiðablik mætir Stjörnunni í Fífunni.
Blikar unnu fyrsta og eina leik sinn í Lengjubikarnum 6-0 og geta komist í annað sæti með sigri gegn Stjörnunni, sem er með fjögur stig eftir þrjár umferðir.
Þetta verður önnur viðureign liðanna á undirbúningstímabilinu. Blikastúlkur höfðu betur í janúar þegar þær unnu 1-3 í riðlakeppni Faxaflóamótsins.
Lengjubikar kvenna A-deild
20:15 Breiðablik-Stjarnan (Fífan)
Lengjubikar karla B-deild - Riðill 3
19:00 Vængir Júpiters-KFG (Fjölnisvöllur - Gervigras)
Lengjubikar kvenna C-deild - Riðill 2
19:00 Leiknir R.-Haukar (Leiknisvöllur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir