Leiknir R. 0 - 5 Haukar
0-1 Aníta Björk Axelsdóttir ('32 )
0-2 Elín Björg Símonardóttir ('45 )
0-3 Elín Björg Símonardóttir ('51 )
0-4 Sierra Marie Lelii ('72 )
0-5 Elín Björg Símonardóttir ('87 )
Haukar áttu ekki í vandræðum með Leiknir R. þegar liðin mættust í C-deild Lengjubikars kvenna á Leiknisvelli í kvöld.
0-1 Aníta Björk Axelsdóttir ('32 )
0-2 Elín Björg Símonardóttir ('45 )
0-3 Elín Björg Símonardóttir ('51 )
0-4 Sierra Marie Lelii ('72 )
0-5 Elín Björg Símonardóttir ('87 )
Haukar áttu ekki í vandræðum með Leiknir R. þegar liðin mættust í C-deild Lengjubikars kvenna á Leiknisvelli í kvöld.
Aníta Björk Axelsdóttir kom Haukum yfir eftir rúmlega hálftíma leik. Elín Björg Símonardóttir tvöfaldaði síðan forystu Hauka rétt fyrir hálfleik. Elín var svo sannarlega ekki búin að syngja sitt síðasta í leiknum.
Hún bætti sínu öðru marki við og þriðja marki Hauka í upphafi síðari hálfleiks. Sierra Marie Lelii kom Haukum síðan í 0-4 á 72. mínútu.
Elín Björ rak síðasta naglann í kistu Leiknis á 87. mínútu þegar hún fullkomnaði þrennu sína. Lokatölur í Breiðholtinu, 0-5, Haukum í vil.
Haukar hafa nú unnið báða sína leiki í riðlinum á meðan Leiknir R. hefur tapað fyrstu tveimur leikjunum.
Athugasemdir