Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 14. mars 2019 21:35
Arnar Helgi Magnússon
Sarri: Loftus-Cheek getur orðið einn sá besti
Mynd: Getty Images
Maurizio Sarri, stjóri Chelsea, var sáttu eftir 5-0 sigur sinna manna gegn Dynamo Kiev í Evrópudeildinni í kvöld.

Chelsea verður því í pottinum þegar dregið verður á morgun í 8-liða úrslitin.

„Við byrjuðum leikinn vel og akkurat eins og við vildum byrja hann. Við skoruðum eftir fimm mínútur sem gerði þetta mjög erfitt fyrir Dynamo. Fyrri hálfleikurinn var frábær og við náðum að stýra leiknum í síðari hálfleik."

Sarri hrósaði Ruben Loftus-Cheek sérstaklega eftir leikinn. Hann lagði upp fyrsta mark leiksins og var sprækur á miðsvæðinu.

„Hann var frábær og hann hefur verið að bæta sig frá degi til dags. Hann hefur verið að glíma við meiðsli en ég er mjög ánægður fyrir hans hönd að hann hafi náð að spila 90 mínútur í dag."

„Hann er stútfullur af hæfileikum og er að bæta sig allstaðar. Hann getur orðið einn allra besti miðjumaður í Evrópu , ekki bara Englandi."

Athugasemdir
banner
banner
banner