Hulda Ósk Jónsdóttir, Saga Líf Sigurðardóttir og María Catharina undirrituðu samninga við Þór/KA í gær.
Þær skrifuðu allar undir samninga sem gilda til lok árs 2021.
Þær skrifuðu allar undir samninga sem gilda til lok árs 2021.
Hulda Ósk er 22 ára sóknarmaður, hún á að baki 121 leik í deild og bikar og 29 mörk með Völsungi, KR og Þór/KA þar af eru 70 leikir í efstu deild og 13 mörk með Þór/KA.
Saga Líf verður 20 ára síðar á árinu og spilar sem miðjumaður. Saga Líf á 19 leiki að baki með meistaraflokki í deild og bikar og í þeim leikjum hefur hún skorað eitt mark með Hömrunum og Þór/KA. Þá á Saga Líf 15 leiki að bak við yngri landsliðum en hún lék með Hömrunum á láni frá Þór/KA síðasta sumar.
María Catharina 16 ára gömul og spilar sem framherji. María á 5 leiki að baki með Þór/KA í efstu deild og í bikar.
Athugasemdir