Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 14. mars 2023 15:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Baldur Logi ekki með í æfingaferð - Má finna sér nýtt lið
Baldur Logi Guðlaugsson.
Baldur Logi Guðlaugsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Baldur Logi Guðlaugsson, leikmaður FH, hefur fengið leyfi til þess að ræða við önnur félög.

Hann er ekki inn í myndinni hjá Heimi Guðjónssyni, þjálfara FH-inga, en hann fór ekki með liðinu í æfingaferð til Tenerife á Spáni. Liðið er í æfingaferðinni þessa stundina á meðan Baldur er heima á Íslandi.

Baldur Logi er 21 árs gamall miðjumaður sem er uppalinn hjá Fimleikafélaginu.

Hann getur einnig spilað sem kantmaður en í fyrra lék hann 17 leiki í Bestu deildinni og skoraði eitt mark þegar FH rétt bjargaði sér frá falli.

Hann spilaði þá þrjá leiki í Mjólkurbikarnum og skoraði eitt mark.

Í vetur hefur hann aðeins spilað einn leik í Lengjubikarnum en hann spilaði fyrri hálfleikinn í 4-2 sigri liðsins á Selfossi.

Baldur, sem lék sinn fyrsta leik í meistaraflokki árið 2017, hefur spilað allan ferilinn með FH en hvar spilar hann í sumar? Það mun koma í ljós á næstu vikum.
Athugasemdir
banner
banner
banner