Jordan Henderson og James Milner notuðu tækifærið í dag til að skjóta á liðsfélaga sinn hjá Englandi, Harry Kane.
Harry Kane fór fram á, eins og frægt er orðið, að mark sem skráð var upprunalega á Eriksen yrði skráð á sig.
Það hefur verið mjög umdeilt hvort hann snerti boltann í rauninni eður ei.
Henderson skaut á Kane í viðtali eftir leikinn. „Salah sagði mér að hann ætlaði að gera kröfu til allra markanna."
Liðsfélagi Henderson og Salah hjá Liverpool nýtti samfélagsmiðilinn Twitter til að skjóta á Kane en það má sjá hér að neðan.
Salah skoraði sitt 30. mark í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu í dag og leiðir keppnina um gullskóinn.

Another hat-trick for Mo today.... just waiting for the other two to be confirmed by the claims panel😜 https://t.co/GPYt4vHMn8
— James Milner (@JamesMilner) April 14, 2018

Athugasemdir