Mögnuð tilþrif Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur með U19 landsliði kvenna í leik gegn Rússlandi á dögunum hafa vakið heimsathygli.
Karólína, sem spilar með Breiðabliki, fór illa með varnarmenn Rússlands áður en hún lagði upp jöfnunarmark fyrir Stefaníu Ragnarsdóttur í 2-2 jafntefli.
Tilþrif hennar rötuðu inn á Instagram-reikning Bleacher Report sem er vinsæll íþróttamiðill. Instagram-reikingur Bleacher Report er með 2,6 milljónir fylgjenda.
Rúmlega 240 þúsund manns hafa horft á myndbandið þar sem tilþrif Karólínu eru sýnd.
Leikurinn gegn Rússlandi var í milliriðli í undankeppni EM. Ísland lenti að lokum í öðru sæti riðilsins og komst því miður ekki á EM.
Hér að neðan má sjá myndbandið sem hefur fengið mikla athygli.
Athugasemdir