„Ég get ekki sagt þér það!" sagði Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, spurður að því hver orð Jurgen Klopp, stjóra Liverpool, hefðu verið í hálfleik í sigrinum á Chelsea.
Staðan var markalaus í hálfleik en Liverpool kom af krafti í seinni hálfleikinn og vann 2-0.
Staðan var markalaus í hálfleik en Liverpool kom af krafti í seinni hálfleikinn og vann 2-0.
„Við þurftum að laga nokkra hluti og skapa pláss fyrir hvorn annan."
„Það var kafli í leiknum þar sem við völtuðum yfir þá en þeir fengu líka nokkur færi. Við þurftum að vera varkárir."
Hversu mikilvægur er þessi sigur í titilbaráttunni.
„Þetta er mjög stór sigur. Þetta er annar stórleikur sem við vinnum. Við þurfum að einbeita okkur að okkur sjálfum, leggja mikið á okkur á æfingasvæðinu og einbeita okkur að næsta leik."
Liverpool er með tveggja stiga forystu á Manchester City, sem á þó leik til góða.
Leikirnir sem Liverpool á eftir:
Cardiff (úti)
Huddersfield (heima)
Newcastle (úti)
Wolves (heima)
Leikirnir sem Man City á eftir:
Tottenham (heima)
Manchester United (úti)
Burnley (úti)
Leicester (heima)
Brighton (úti)
Athugasemdir