Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 14. apríl 2019 21:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mjólkurbikarinn: Selfoss og Úlfarnir áfram
Tokic kom Selfossi á bragðið.
Tokic kom Selfossi á bragðið.
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Selfoss og Úlfarnir komust áfram í Mjólkurbikarnum í kvöld.

Selfoss hafði betur gegn Þrótti Vogum í 2. deildarslag. Hrvoje Tokic kom Selfossi yfir í fyrri hálfleik og í seinni hálfleiknum bættu Adam Örn Sveinbjörnsson og Kenan Turudija við mörkum. Turudija skoraði með þrumufleyg.

Tvisvar þurfti að kalla til sjúkrabíl í fyrri hálfleiknum. Jordan Tyler fór meiddur af velli hjá Þrótti og Reda Maamar hjá Selfossi.

Úlfarnir burstuðu Vatnalijur, 6-1 í Fífunni. Steinar Haraldsson og Andri Þór Sólbergsson skoruðu báðir tvö mörk.

Selfoss mætir Aftureldingu í næstu umferð og Úlfarnir munu heimsækja Víking Ólafsvík.

Selfoss 3 - 0 Þróttur V.
1-0 Hrvoje Tokic
2-0 Adam Örn Sveinbjörnsson
3-0 Kenan Turudija

Úlfarnir 6 - 1 Vatnaliljur
1-0 Steinar Haraldsson ('9)
1-1 Hjálmar Ingi Kjartansson ('14)
2-1 Andri Þór Sólbergsson ('23)
3-1 Steinar Haraldsson ('26)
4-1 Sæmundur Óli Björnsson ('37)
5-1 Andri Þór Sólbergsson ('47)
6-1 Arnór Siggeirsson ('53)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner