Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. apríl 2019 16:46
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Salah dýfði sér gegn Chelsea
Mynd: Getty Images
Staðan var markalaus eftir fyrri hálfleik í mikilvægum leik Liverpool og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.

Það er mikið undir hjá báðum liðum þar sem Liverpool þarf sigur í titilbaráttunni og Chelsea í Meistaradeildarbaráttunni.

Mohamed Salah veit vel hvað er undir og reyndi hann að fiska vítaspyrnu í fyrri hálfleik.

Hann reyndi að leika á David Luiz og lét sig falla til jarðar en fékk enga vítaspyrnu og var heppinn að sleppa því að fá gult spjald að launum.

Nú eru 56 mínútur búnar af leiknum og staðan orðin 2-0 fyrir Liverpool. Salah skoraði annað markið með glæsilegu bylmingsskoti fyrir utan teig.



Athugasemdir
banner
banner