Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 14. apríl 2019 14:11
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Sara Björk skoraði í stórsigri gegn Söndru Maríu
Mynd: Mirko Kappes
Bayer Leverkusen 0 - 5 Wolfsburg
0-1 Ewa Pajor ('10)
0-2 Sara Björk Gunnarsdóttir ('25)
0-3 C. Hansen ('45)
0-4 Ewa Pajor ('54)
0-5 Pernille Harder ('61)

Sara Björk Gunnarsdóttir og Sandra María Jessen byrjuðu báðar Íslendingaslag dagsins í efstu deild þýska kvennaboltans.

Sara og stöllur í toppliði Wolfsburg heimsóttu þar Söndru Maríu til Leverkusen. Wolfsburg er í titilbaráttu við Bayern München á meðan Leverkusen er í harðri fallbaráttu.

Wolfsburg lenti ekki í vandræðum og skoraði Sara Björk annað mark leiksins á 20. mínútu. Lokatölur voru 0-5.

Sandra lék fyrstu 74 mínúturnar. Hún gekk til liðs við Leverkusen í janúar eftir að hafa gert frábæra hluti með Þór/KA hér á landi.
Athugasemdir
banner
banner
banner