14.04.25 - 21:50
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Alvarez með tvö vítaspyrnumörk í sigri Atlético

Julian Alvarez nýtti bæði vítin sín

Mynd: EPA

Julian Alvarez nýtti bæði vítin sín

Mynd: EPA
Atletico Madrid 4 - 2 Valladolid
0-1 Mamadou Sylla ('21 , víti)
1-1 Julian Alvarez ('25 , víti)
2-1 Giuliano Simeone ('27 )
2-2 Javi Sanchez ('56 )
3-2 Julian Alvarez ('71 , víti)
4-2 Alexander Sorloth ('79 )
0-1 Mamadou Sylla ('21 , víti)
1-1 Julian Alvarez ('25 , víti)
2-1 Giuliano Simeone ('27 )
2-2 Javi Sanchez ('56 )
3-2 Julian Alvarez ('71 , víti)
4-2 Alexander Sorloth ('79 )
Atlético Madríd er nú nær því að tryggja sér þátttöku í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð eftir 4-2 sigur liðsins á Real Valladolid á Wanda Metropolitano-leikvanginum í Madríd í kvöld.
Vítaspyrnur voru þema kvöldsins. Valladolid komst yfir úr einni slíkri á 21. mínútu er Clement Lenglet handlék boltann eftir hornspyrnu og skoraði Mamadou Sylla úr vítinu.
Argentínumaðurinn Julian Alvarez skoraði sjálfur úr víti aðeins fjórum mínútum síðar er brotið var á Giuliano Simeone í teignum.
Simeone gerði annað mark Atlético tveimur mínútum síðar með laglegu skoti og fóru heimamenn inn í hálfleikinn með eins marks forystu.
Javi Sanchez náði að bæta upp fyrir brot sitt í vítaspyrnu Atlético með því að gera annað mark Valladolid snemma í síðari hálfleiknum en Atlético hélt áfram að pressa og uppskar tvö mörk á síðustu tuttugu mínútunum.
Þriðja vítaspyrnan var dæmd á 70. mínútu er Henrique braut á Marcos Llorente og skoraði Alvarez annað vítaspyrnumark sitt.
Varamaðurinn Alexander Sorloth gerði síðan út um leikinn er hann hirti frákast eftir að markvörður Valladolid varði skot Rodrigo Riquelme út í teiginn.
Atlético er í 3. sæti með 63 stig og með tólf stig á Villarreal sem er í Evrópudeildarsæti þegar sjö leikir eru eftir. Madrídarliðið er þá aðeins þremur stigum frá nágrönnum sínum í Real Madrid, sem sitja í öðru sæti. Fall blasir á meðan við Valladolid sem er á botninum með aðeins 16 stig.

La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 9 | +30 | 27 |
| 2 | Atletico Madrid | 10 | +12 | 25 |
| 3 | Real Madrid | 9 | +14 | 21 |
| 4 | Betis | 9 | +2 | 19 |
| 5 | Real Sociedad | 9 | 0 | 16 |
| 6 | Sevilla | 9 | -2 | 14 |
| 7 | Alaves | 10 | +3 | 12 |
| 8 | Villarreal | 10 | +1 | 12 |
| 9 | Celta | 9 | +3 | 11 |
| 10 | Deportivo | 10 | 0 | 11 |
| 11 | Osasuna | 9 | -8 | 11 |
| 12 | Racing Santander | 10 | -11 | 11 |
| 13 | Levante | 9 | -2 | 10 |
| 14 | Elche | 10 | -3 | 10 |
| 15 | Athletic | 8 | -1 | 9 |
| 16 | Getafe | 9 | -6 | 9 |
| 17 | Vallecano | 9 | -8 | 9 |
| 18 | Espanyol | 10 | -2 | 8 |
| 19 | Valencia | 10 | -10 | 6 |
| 20 | Malaga | 10 | -12 | 5 |