Fotbolti.net
14.05.20 - 13:30
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Sarri mættur aftur á æfingasvæðið

Maurizio Sarri.

Maurizio Sarri.

Canon

Mynd: Getty Images

Maurizio Sarri, þjálfari Juventus, er mættur aftur í höfuðstöðvar félagsins. Hann hefur ekki mætt þangað í tvo mánuði, eða síðan kórónaveirufaraldurinn varð til þess að keppni var stöðvuð.

Sarri mætti á æfingasvæðið á morgun til að funda með starfsliði sínu um æfingaáætlanir framundan. 18. maí munu æfingar í hópum hefjast aftur en í dag eru aðeins einstaklingsæfingar leyfðar á Ítalíu.
Á Ítalíu er stefnan að reyna að hefja ítölsku A-deildina aftur þann 13. júní, sama dag og Pepsi Max-deildin fer af stað hér á landi.

Juventus er á toppi deildarinnar, einu stigi fyrir ofan Lazio, þegar tólf umferðir eru eftir. Inter er í þriðja sæti níu stigum á eftir toppliðinu en á leik til góða.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio12+1932
2Roma12+2530
3Inter11+1528
4Como12+1026
5Milan11+1024
6Frosinone11+920
7Napoli12+518
8Juventus11+318
9Bologna11+217
10Cagliari12-716
11Torino12-314
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce12-1310
15Fiorentina11-89
16Parma12-128
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.